Fagrabjarg - lögfræðiþjónusta
  • Heim
  • Þjónusta
  • Um mig
  • Hafðu samband
  • English

Þjónusta

Hér má líta þá þjónustu sem ég hef upp á að bjóða. 

Virðisaukaskattur

Ég veiti sérfræðiþjónustu varðandi hvaðeina sem varðar virðisaukaskatt. Eftir áralangt starf hjá Skattinum hef ég reynslu af öllum sviðum virðisaukaskatts. Hér eru dæmi um það sem þið gæti vantað aðstoð við:
  • Þarf ég virðisaukaskattsnúmer?
  • Á ég að innheimta 11% eða 24% virðisaukaskatt?
  • Er starfsemin mín virðisaukaskattsskyld?
  • Hverjir eiga að innheimta virðisaukaskatt?
  • Hvernig skrái ég mig á virðisaukaskattsskrá?
  • Þarf ég rauð númer á vinnubílinn?
  • ​Má ég innskatta allt bensín?
  • Má ég telja allan virðisaukaskatt til innskatts?
  • Kaupandinn er útlendingur, á ég að innheimta virðisaukaskatt?
  • Ég er með margþætta starfsemi sem er hvorutveggja skattskyld og undanþegin, hvernig virkar það?
  • Ég er að byggja atvinnuhúsnæði, get ég talið virðisaukaskatt vegna byggingarinnar til innskatts?
  • Ég er listamaður, þarf ég að innheimta virðisaukaskatt?
  • Fékkstu bréf frá Skattinum sem þú veist ekki hvernig á að svara?
  • Ertu ósáttur við niðurstöðu Skattsins í þínu máli og vilt kæra til yfirskattanefndar?
  • Telurðu að Skatturinn hafi ekki hlustað á þín rök?
  • Telurðu að álag eigi ekki rétt á sér?​

Meðlag eða barnabætur

Ég get aðstoðað þig við að kanna hvaða rétt þú hefur í þessum málaflokki. Algengur misskilningur er að lögheimili ráði öllu er kemur að þessum greiðslum en reyndin er önnur þó það sé meginreglan. Heyrðu í mér ef þú telur að á þér sé brotið með synjun á greiðslu eða hvað eina sem varðar meðlag eða barnabætur. 

Samskipti við stjórnvöld

Þurfir þú að eiga í samskiptum við önnur stjórnvöld en skattyfirvöld eða þarft að eiga við stjórnsýslu að hvaða leiti sem er get ég aðstoðað við það.
Ég fer yfir málið og skoða hvort stjórnvald hafi farið að stjórnsýslulögunum við meðferð máls þíns.

Umsóknir

Þarftu að sækja um endurgreiðslu virðisaukaskatts eða annarskonar umsókn til Skattsins? 
Heyrðu í mér ef þig vantar aðstoð við umsókn til stjórnvalds. 
Vanti þig aðstoð við hvað af ofantöldu, hafðu samband við mig og við skoðum málið saman. Vanti þig aðstoð við annað, endilega heyrðu í mér og við sjáum hvort ég geti ekki aðstoðað þig. 
Picture
Fagrabjarg ehf.    Kt. 520825-1850
VSK nr. 158929
​[email protected] 
  • Heim
  • Þjónusta
  • Um mig
  • Hafðu samband
  • English