Fagrabjarg - lögfræðiþjónusta
  • Heim
  • Þjónusta
  • Um mig
  • Hafðu samband
  • English

Um mig

Ég heiti Íris Erlingsdóttir og er löglærður sérfræðingur á öllum sviðum virðisaukaskatts. 
Ég er fjögurra barna móðir og bý í Hafnarfirði ásamt manni og börnum, tveimur hundum og einum heimilisketti. 
Picture

Íris Erlingsdóttir
Lögfræðingur

Fagrabjarg ehf. stofnað 2025

Í kjölfar þess að ég ákvað að láta af störfum hjá Skattinum sumarið 2025 eftir rúm 16 ár í starfi hjá skattyfirvöldum, stofnaði ég Fagrabjarg ehf. ásamt mínum manni. Með stofnun félagsins vildi ég bjóða upp á persónulega, faglega og trausta lögfræðiþjónustu aðallega á sviði virðsiaukaskatts en ég hef sérhæft mig í þeim málaflokki en einnig í þeim málum er snúa að stjórnsýslu og samskiptum við stjórnvöld almennt og má þar sem dæmi nefna sýslumann og Tryggingastofnun.

Nám

Ég hóf nám við Háskólann í Reykjavík í lögfræði haustið 2005 og kláraði BA gráðu um vorið 2008. Skellti mér beint í master og útskrifaðist með ML í lögfræði vorið 2010.
​
Í námi mínu við Háskólann í Reykjavík, sérhæfði ég mig í skattarétti og tók alla skattaréttaráfanga sem ég hafði möguleika á að taka. BA ritgerðin mín var enn fremur á sviði tekjuskatts. 

Persónuleg reynsla 

Í gegnum lífið hef ég persónulega átt í ýmsum samskiptum við Sýslumanninn á höfuðborgarsvæðinu, Tryggingastofnun og Skattinn vegna framfærslu barna eftir skilnað og þurft að rita allmörg bréf vegna þessara mála. Ég hef því þekkingu á þeim málaflokki og hef lært að margt sem samfélagið telur að sé greipt í stein er það ekki. 

Störf

Vorið 2009 réði ég mig í sumarstarf á skattstofunni í Hafnarfirði hjá þáverandi Skattstjóranum í Reykjanesumdæmi. Frá þeim tíma hef ég starfað hjá skattyfirvöldum, fyrst hjá skattstjóra, svo ríkisskattstjóra og nú síðast hjá Skattinum. 
​
Við störf mín hjá skattyfirvöldum hef ég sérhæft mig í virðisaukaskatti. Starfaði sem hópstjóri yfir álagningu og endurgreiðslum í nokkur ár og síðar sem deildarstjóri virðisaukaskattsdeildar í nokkur ár. Við lok starfsemi minnar hjá Skattinum starfaði ég við fagmál og sérfræðiráðgjöf fyrir virðisaukaskattsdeild Skattsins. 

Ég hef tekið þátt í flestum laga- og reglugerðarbreytingum sem varða virðisaukaskatt á meðan ég starfaði hjá Skattinum. 

Í störfum mínum hef ég unnið við lítil og stór mál í öllum málaflokkum virðisaukaskatts, komið að mörgum kærum til yfirskattanefndar og þurft að skoða hvort málsmeðferð hafi farið að stjórnsýslulögum. 
​

Markmið Fagrabjargs ehf. 

Markmið félagsins er að veita faglega og trausta lögfræðiþjónustu til einstaklinga og minni fyrirtækja. Allt frá því að svara einföldum fyrirspurnum til flóknari mála, s.s. vinnslu kæra til æðra stjórnvalds. ​
Picture
Fagrabjarg ehf.    Kt. 520825-1850
VSK nr. 158929
​[email protected] 
  • Heim
  • Þjónusta
  • Um mig
  • Hafðu samband
  • English